Loforð Atlas

Við munum fylgja þeim stöðlum sem best hafa nýst í öruggri hýsingu. Þar á meðal SOC2, sem tilgreinir bestu verkferla sem þekkjast í hýsingu. Skammt undan er vottunarferli okkar fyrir ISO27001, sem er ennþá víðtækari öryggisstaðall, þar sem upplýsingastjórnunarkerfi er straumlínulagað og áhættumöt eru tryggð.

Finnirðu öryggisveikleika þá viljum við heyra af þeim í samræmi við stefnu okkar um birtingu veikleika (https://vdp.defendiceland.is/disclosure-policy/atlas). Vinsamlegast tilkynntu veikleika þar og fylgdu þeirri stefnu. Þegar tilkynntir öryggisveikleikar hafa verið lagaðir munum við tilkynna um þá opinberlega, nema að sérstök ástæða sé til annars. Öryggisbresti munum við alltaf tala um fljótt, opinskátt og skýrt.

Vélbúnaður Atlas er hýstur í gagnaveri Borealis á Íslandi sem stenst háar upptímakröfur um Tier 3, t.d. með tvöföldu varaafli og tvöfaldri kælingu. Það gerum við til að tryggja hámarks áreiðanleika og öryggi.

Netöryggisfyrirtækið Syndis vaktar kerfi Atlas allan sólarhringinn í sínu öryggissetri (e. Security Operations Center). Við tryggjum varnir gegn dreifðum árásum (e. Distributed Denial of Service) með tækni Nova, fjarskiptaaðilans okkar. Auk þess munum framkvæma veikleikaprófanir (e. Penetration Testing) á okkar innviðum reglulega.

Sem kerfislega mikilvægur aðili í þjónustu mikilvægra innviða munum við falla undir nýju netöryggislöggöfina NIS2. Til að hlíta henni eru strangar öryggiskröfur um afrit, ferla og stýringu sem við munum vinna í samstarfi við Fjarskiptastofu með sjálfsmati og úttektum á okkar innviðum.

Notendur hafa svo verkfærin til þess að vernda sín kerfi enn frekar með marglaga auðkenningu, stillanlegri dulkóðun gagna, IP aðgangsstýringum og fulla stjórn yfir eigin eldveggjum.

Fylgjast má með stöðu kerfanna okkar hér https://status.runatlas.is

Síðast uppfært: 8. janúar 2026