Persónuverndarstefna Atlas Cloud ehf.
Hér að neðan er gerð grein fyrir því hvernig Atlas Cloud ehf. safnar, geymir og nýtir upplýsingar í tengslum við þjónustu okkar.
1. Söfnun og geymsla upplýsinga
Við söfnum og geymum eftirfarandi upplýsingar um viðskiptavini okkar:
Nafn Netfang Símanúmer Heimilisfang Kennitölu fyrirtækis Aðgangsnúmer skýjareiknings Greiðsluupplýsingar
Tilgangur vinnslu: Upplýsingarnar eru nýttar til að tengja saman reikninga, hafa samband við þig og auðkenna þig (að þú sért þú) ef þú hringir í okkur. Einnig notum við tölvupóst í markaðstilgangi til að tilkynna um nýjungar og fréttir.
2. Mælingar og tæknileg gögn
Til að geta mælt notkun og rukkað samkvæmt henni í lok mánaðar, sem og til að hafa yfirlit yfir heilbrigði og álag kerfa okkar, skráum við:
Klukkustundir af notkun á sýndarvélavörunum okkar. Fjölda gibibæta (GiB) sem tekin eru frá fyrir harðadiska fyrir sýndarvélarnar. Fjölda gibibæta (GiB) sem notuð eru í hlutbundinni geymslu (e. Object Store).
3. Vefkökur og netumferð
Vefkökur (Cookies): Við notum vefkökur á vefsíðunni okkar til að fylgjast með áhuga á síðunni.
Heimsóknir: Við heimsóknir á vefi okkar geymum við IP tölur, tímasetningu og tímalengd heimsóknanna.
4. Miðlun upplýsinga
Við munum skrifa undir samninga við þriðja aðila sem sér um greiðslumiðlun með upplýsingum þínum, til að tryggja örugga meðferð þeirra.
5. Eyðing gagna
Þú getur beðið okkur um að eyða þínum gögnum hvenær sem er, að því gefnu að viðskiptasambandi okkar hafi verið slitið.
6. Ábyrgð og öryggi (Shared Responsibility Model)
Ábyrgð Atlas Cloud: Við berum ábyrgð á öryggi Atlas skýsins og okkar innviðum.
Ábyrgð notanda: Þú sem notandi skýsins berð ábyrgð á öryggi þeirra sýndarþjóna sem þú leigir út. Notandi skýsins er jafnframt ábyrgur fyrir geymslu og vistun persónuupplýsinga á innviðum, sýndarvélum og geymsluþjónustum Atlas. Þetta getur þó breyst ef skrifað er undir vinnslusamning persónuupplýsinga við Atlas Cloud. Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á því.
7. Breytingar á stefnu
Atlas Cloud ehf. getur breytt þessari persónuverndarstefnu og sett uppfærða útgáfu á þennan vef. Sú útgáfa tekur þá umsvifalaust gildi án sérstakra tilkynninga.
Síðast uppfært: 5. desember 2025